Myndband: Slæmt tap á Ásvöllum

Almennt | Fótbolti
Myndband: Slæmt tap á Ásvöllum
Juraj skoraði mark KA en Haukar gerðu fjögur

Haukar tóku á móti KA á Ásvöllum í kvöld í annarri umferð Inkasso deildarinnar. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Arnar Aðalgeirsson heimamönnum yfir á 63. mínútu og áfram héldu Haukar að skora en Elton Renato Livramento Barros skoraði úr víti á 65. mínútu og Haukur Ásberg Hilmarsson kom liðinu í 3-0 á 70. mínútu. Juraj Grizelj lagaði stöðuna fyrir KA á 75. mínútu en Arnar Aðalgeirsson var ekki lengi að svara fyrir það mark og lokatölur 4-1.

Leikurinn var sýndur beint á Stöð 2 Sport og má sjá mörkin úr leiknum hér að neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is