Myndir og myndband frá Íslandsmeisturum 5. flokks

Fótbolti
Myndir og myndband frá Íslandsmeisturum 5. flokks
Magnað sumar hjá stelpunum! (mynd: Egill Bjarni)

Stelpurnar í 5. flokki KA hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum um síðustu helgi en stelpurnar lögðu FH 6-0 að velli í úrslitaleiknum sem fram fór á Greifavellinum. Stelpurnar áttu stórkostlegt sumar en þær unnu alla leiki sína og það á sannfærandi hátt en þær gerðu 115 mörk og fengu aðeins á sig 9 mörk.

Leikurinn var í beinni útsendingu á KA-TV og er hægt að sjá mörkin hér fyrir ofan. Bríet Fjóla Bjarnadóttir gerði tvö mörk í leiknum og þær Aníta Ingvarsdóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir og Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir gerðu allar sitt hvort markið í sigrinum góða.

Stelpurnar áttu eins og fyrr segir frábært tímabil og alveg ljóst að stelpurnar eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Þrátt fyrir ungan aldur er komin mikil sigurhefð í hópinn og afar ánægjulegt að sjá hve vel stelpurnar spila þegar í stóru úrslitaleikina er komið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum og sigurgleðinni í leikslok

Íslandsmeistaralið KA: Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Katrín Lilja Árnadóttir, Ásdís Fríður Gautadóttir, Móeiður Alma Gísladóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir, Ingibjörg Lóa Sævarsdóttir og Aníta Ingvarsdóttir.

Ekki nóg með að stelpurnar í A-liðinu hafi hampað titlinum þá lék B-liðið einnig til úrslita og mætti þar liði Breiðabliks. Eftir frábæran og spennandi leik voru það Blikar sem fóru með 3-4 sigur af hólmi og hömpuðu titlinum en Kristjana Ómarsdóttir gerði tvö mörk fyrir KA og Ísafold Gná Ólafsdóttir gerði eitt mark.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Frábær árangur hjá stelpunum þó vissulega sé ansi svekkjandi að sjá á eftir titlinum en þegar litið er á sumarið í heild sinni var spilamennskan algjörlega frábær og verður virkilega gaman að fylgjast áfram með framgöngu stelpnanna.

Silfurlið KA: Katla Hjaltey Finnbogadóttir, Þórdís Björg Davíðsdóttir, Halldóra Ósk Gunnlaugsd. Briem, París Hólm Jónsdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir, Selma Lárey Hermannsdóttir, Tinna Karitas Ólafsdóttir, Kristjana Ómarsdóttir, Ísafold Gná Ólafsdóttir og Sigyn Elmarsdóttir.

Þjálfarar stelpnanna eru þeir Andri Freyr Björgvinsson, Anton Orri Sigurbjörnsson, Egill Heinesen, Harpa Jóhannsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is