Rodrigo Gomes til liðs við KA

Fótbolti
Rodrigo Gomes til liðs við KA
Bjóðum Rodrigo velkominn í KA!

Rodrigo Gomes Mateo hefur skrifað undir tveggja ára samning við Knattspyrnudeild KA. Rodrigo er þrítugur Spánverji sem kemur til KA frá Grindavík þar sem hann hefur leikið frá árinu 2015. Hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Grindvíkingum og lék alls 92 leiki fyrir félagið.

Rodrigo er varnarsinnaður miðjumaður og ætlumst við í KA til mikils af honum. Hann þekkir íslenska boltann gríðarlega vel eftir tíma sinn með Grindavík og ætti því að smella vel inn í hópinn. Við bjóðum Rodrigo velkominn í KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is