Sandra María til Bayer Leverkusen

Fótbolti
Sandra María til Bayer Leverkusen
Sandra var valin best í Pepsi deildinni

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA í knattspyrnu er nú genginn til liðs við Þýska liðið Bayer Leverkusen. Þetta er frábært skref fyrir Söndru sem hefur verið algjör lykilleikmaður í liði Þórs/KA frá árinu 2011 og var hún meðal annars valin besti leikmaður Pepsi deildarinnar á síðasta tímabili.

Sandra þekkir vel til aðstæðna hjá Bayer Leverkusen en hún lék á láni með liðinu í upphafi ársins 2016. Þá lék hún með Slavia Prag í Tékklandi í fyrra. Með Þór/KA hefur Sandra María tvívegis orðið Íslandsmeistari og leikið alls 140 leiki í deild og bikar þar sem hún hefur gert 85 mörk. Einnig hefur hún leikið í Meistaradeild Evrópu með Þór/KA og skoraði til að mynda gegn Linfield í sumar.


Hér má sjá öll mörk Söndru fyrir Þór/KA síðustu tvö tímabil

Auk þess hefur Sandra leikið 24 leiki með A-landsliði Íslands og gert í þeim 6 mörk til viðbótar við 25 unglingalandsleiki. Það er klárt mál að það verður mikill missir fyrir Þór/KA að missa Söndru Maríu auk þess sem Anna Rakel Pétursdóttir gekk nýverið til liðs við Linköping í Svíþjóð.

Við óskum Söndru Maríu góðs gengis í Þýskalandi og hlökkum til að fylgjast með gengi liðsins í þessari sterkustu deild í heimi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is