Sjö fulltrúar í U15 og U16 hópunum

Fótbolti
Sjö fulltrúar í U15 og U16 hópunum
Stelpurnar eru klárar í slaginn!

KA og Þór/KA eiga alls sjö fulltrúa í U15 og U16 landsliðshópum í knattspyrnu sem æfa næstkomandi daga í Kaplakrika í Hafnarfirði. Það er mikil gróska í knattspyrnustarfinu okkar og frábær viðurkenning að jafn margir iðkendur úr okkar röðum séu valdir í landsliðsverkefni.

Angela Mary Helgadóttir, Helga Dís Hafsteinsdóttir, Karlotta Björk Andradóttir og Krista Dís Kristinsdóttir frá Þór/KA voru allar valdar í æfingahóp U15 landsliðs kvenna sem æfir undir stjórn Ólafs Inga Skúlasonar.

Þeir Ívar Arnbro Þórhallsson og Máni Dalstein Ingimarsson voru valdir í æfingahóp U15 landsliðs karla sem æfir undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar.

Þá var Elvar Máni Guðmundsson valinn í æfingahóp U16 ára landsliðs karla en hópurinn kemur til æfinga á morgun en Jörundur Áki Sveinsson stýrir hópnum.

Við óskum okkar glæsilegu fulltrúum til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is