Sjóvá styrkir knattspyrnudeild KA næstu 2 árin

Fótbolti
Sjóvá styrkir knattspyrnudeild KA næstu 2 árin
Baldvin og Hjörvar handsala nýja samninginn

Sjóvá og knattspyrnudeild KA undirrituðu í dag nýjan tveggja ára styrktarsamning. Sjóvá hefur verið öflugur bakhjarl deildarinnar og erum við afar þakklát þeim fyrir áframhaldandi samstarf sem mun skipta miklu máli í knattspyrnustarfinu.

Á myndinni má sjá þá Baldvin Ólafsson útibússtjóra Sjóvá á Akureyri og Hjörvar Maronsson formann knattspyrnudeildar KA. Báðir eru þeir fæddir árið 1985 og spiluðu fyrir meistaraflokk KA. Baldvin lék alls 62 leiki fyrir KA í deild og bikar og Hjörvar lék 16 leiki. Baldvin er að vísu enn að og leikur með Magna á Grenivík í dag.

KA undirbýr sig nú fyrir fjórða sumarið í röð í efstu deild en á síðasta tímabili endaði liðið í 5. sæti sem er besti árangur KA frá árinu 2002. Það er ljóst að KA ætlar sér enn meira á næstu árum og þá er auk þess unnið gríðarlega gott starf hjá yngriflokkum félagsins í fótboltanum. Það er klárt að samningurinn við Sjóvá mun hjálpa til við að halda þeirri vegferð áfram.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is