Steinþór Freyr framlengir um eitt ár

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa gert eins árs framlengingu á samning sínum og því ljóst að Steinþór leikur með KA á næstu leiktíð. Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið.

Steinþór lauk nýverið sínu þriðja tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi. Steinþór sem er 34 ára hefur leikið 43 leiki fyrir KA í deild og bikar og hefur í þeim gert eitt mark. Þá hefur hann verið öflugur í leikjum KA í Kjarnafæðismótinu og hefur gert tvö mörk í mótinu til þessa.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngrilandsliðsleiki.

Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leikmaður er hann flott fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn okkar og mun halda áfram að miðla sinni miklu reynslu til þeirra.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is