Stórleikur gegn ÍR í KA-Heimilinu í kvöld

Handbolti
Stórleikur gegn ÍR í KA-Heimilinu í kvöld
Allan vill 2 stig í kvöld!

Það verður svo sannarlega hart barist í KA-Heimilinu í kvöld þegar KA tekur á móti ÍR í 4. umferð Olís deildar karla í handbolta. Liðin gerðu dramatískt jafntefli á síðustu leiktíð þar sem allt sauð uppúr að leik loknum og má búast við að það verði háspenna lífshætta í viðureign liðanna í kvöld.

KA liðið vann frábæran 25-32 útisigur á Fjölnismönnum í síðustu umferð og eru staðráðnir í að bæta við stigafjöldann með sigri í kvöld. Gestirnir hafa hinsvegar byrjað enn betur og eru með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína.

Kæru KA-menn við þurfum svo sannarlega á ykkur að halda í kvöld. Stemningin í KA-Heimilinu hefur verið ótrúleg og hún skipar risastóran sess í því að við séum á þeim stað sem við erum í handboltanum. Hlökkum til að sjá ykkur gul og glöð og áfram KA!

Ef svo ólíklega vill til að þið komist alls ekki í KA-Heimilið þá verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV og má nálgast hana hér fyrir neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is