Súrt jafntefli gegn Víkingum

Fótbolti
Súrt jafntefli gegn Víkingum
Mynd - Sævar Sig.

KA og Víkingur R. gerðu 2-2 jafntefli í dag á Akureyrarvelli. KA komst yfir 2-0 en gestirnir komu til baka náðu að jafna í uppbótartíma eftir að hafa verið manni fleiri síðasta korter leiksins.

KA 2 – 2 Víkingur R.

1 - 0 Ásgeir Sigurgeirsson (’46)
2 - 0 Emil Sigvardsen Lyng (’61) Stoðsending: Elfar Árni
2 - 0 Rautt Spjald: Bjarki Þór Viðarsson (’76)
2 - 1 Vladimir Tufegdzic (’77)
2 - 2 Alex Freyr Hilmarsson (’93)


Hér má sjá umfjöllun RÚV um leikinn

Lið KA:

Rajko, Hrannar Björn, Guðmann (F), Callum, Ívar Örn,  Almarr, Aleksandar, Ásgeir, Hallgrímur Mar, Emil og Elfar Árni.

Bekkur:

Aron Dagur, Baldvin, Ólafur Aron, Halldór Hermann, Steinþór Freyr, Daníel, Bjarki Þór.

Skiptingar:

Hrannar Björn út – Bjarki Þór inn (’72)
Elfar Árni út – Steinþór Freyr inn (’72)
Emil út – Baldvin inn (’82)

Leikurinn í dag hófst á rólegum nótum og voru bæði liðin heldur róleg í aðgerðum sínum. Gestirnir úr Fossvoginum virkuðu sprækari til að byrja með en KA tók svo stjórn á leiknum og var meira með boltann. Hættulegasta færi gestanna í fyrri hálfleik átti Vladimir Tufegdzic er hann slapp í gegn en skot hans var beint á Rajko í marki KA.

Hættulegasta færi KA í fyrri hálfleik átti Ásgeir þegar að Emil átti góða sendingu á hann inn fyrir vörn Víkinga en Róbert í marki gestanna gerði vel að verja skot Ásgeirs í horn. Staðan í hálfleik því markalaus.

Ekki voru liðnar nema rúmlega 20 sekúndur af síðari hálfleik þegar að Ásgeir komst inn í sendingu frá varnarmanni Víkinga og var kominn einn í gegn og kláraði færið af snilld framhjá Róberti í marki Víkinga og kom KA yfir 1-0.

KA voru svo mjög öflugir eftir markið og sóttu að krafti að marki gestanna. Það var svo á 61. mínútu sem Elfar ætlaði að gefa á Hallgrím Mar út í teignum en hann náði ekki til boltans sem endaði hjá Emil Lyng sem kom á ferðinni og hamraði boltann í netið utarlega í teignum og kom KA verðskuldað í 2-0.

Það var svo á 76. mínútu sem umdeilt atvik átti sér stað. Víkingar voru þá í stórsókn og voru við það að minnka muninn en Bjarki Þór bjargaði á línunni og virtist boltinn fara í hönd hans og dæmdi dómari leiksins því vítaspyrnu og rautt spjald á Bjarka sem hafði aðeins verið inn á vellinum í fjórar mínútur.  Vítið tók Vladimir Tufegdzic og sendi hann Rajko í vitlaust horn minnkaði muninn fyrir Víkinga 2-1.

Eftir markið sóttu gestirnir stíft að marki KA sem reyndu allt hvað þeir gátu til að halda út manni færri. Svo virtist sem það væri að takast þangað til á 93. mínútu þegar að Dofri Snorrason átti fyrirgjöf á Alex Frey sem skoraði af stuttu færi úr markteignum og jafnaði því metin fyrir gestina.

Lokatölur því 2-2 og svekkjandi jafntefli niðurstaðan. Annnan leikinn í röð sem KA fær mark á sig í uppbótartíma sem ræður til um úrslit leiksins.

KA-maður leiksins: Almarr Ormarsson (Var gríðarlega öflugur á miðjunni hjá KA í dag og vann marga bolta og skilaði sínu vel.)

Næsti leikur KA er á mánudaginn annan í Hvítasunnu, þann 5. júní þegar að liðið heldur til Ólafsvíkur og etur kappi við Víkinga frá Ólafsvík. Sá leikur hefst kl. 17.00 og hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið að fylgja liðinu vestur á leikinn. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is