Tap gegn ÍR í bikarnum

Fótbolti
Tap gegn ÍR í bikarnum
Mynd - Sævar Sig.

KA og ÍR áttust við í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Gestirnir úr ÍR gerðu sér lítið fyrir og lögðu KA að velli 1-3 að lokinni framlengingu.

KA 1 – 3 ÍR

0 – 1 Jón Gísli Ström (’7)
1 – 1 Elfar Árni Aðalsteinsson (’51) Stoðsending: Hallgrímur Mar
1 – 1 Hallgrímur Mar Steingrímsson brenndi af víti (‘64)
1 – 2 Andri Jónasson (’97)
1 – 3 Jón Arnar Barðdal (‘111)

Lið KA:

Aron Dagur, Hrannar, Archange, Ívar, Baldvin, Almarr, Ólafur Aron, Bjarki Þór, Daníel, Hallgrímur Mar og Emil.

Bekkur:

Rajko, Elfar Árni, Ásgeir, Brynjar Ingi, Tómas Veigar, Bjarni og Áki.

Skiptingar:

Almarr út – Ásgeir inn (’30)
Emil út – Elfar Árni inn (’45+5)
Daníel út – Áki inn (’72)

KA og ÍR mættust á gervigrasvelli KA í kvöld. KA gerði 6 breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn Fjölni á sunnudaginn. Gestirnir úr Breiðholtinu mættu mjög grimmir til leiks í kvöld og voru þéttir til baka og beittu sterkum skyndisóknum.

Leikurinn var ekki nema sjö mínútna gamall þegar að Viktor Örn gaf sendingu á Jón Gísla sem lék á Baldvin í vinstri bakverðinum og skaut föstu skoti á markið framhjá Aroni Degi í marki KA og gestirnir því komnir óvænt 0 – 1 yfir.

KA liðið virtist slegið við markið og var ekki nægileg hreyfing á liðinu og fá færi sem liðið náði að skapa sér fram að hálfleik. Staðan því í hálfleik því 0 -1 gestunum í ÍR í vil. KA þurfti að gera tvær skiptingar í fyrri hálfleik og báðar vegna meiðsla. Fyrst fór Almarr meiddur af velli eftir aðeins hálftíma leik og svo var Emil Lyng borinn meiddur af velli í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir harðan árekstur við leikmann ÍR og leit það ekki vel út. Vonum það besta hins vegar.

KA hóf síðari hálfleikinn af miklum krafti og eftir 6 mínútna leik fékk KA aukaspyrnu sem Hallgrímur Mar tók og endaði boltinn hjá Elfari Árna sem kom boltanum lystilega í markið og jafnaði leikinn 1-1.

Tíu mínútum síðar fékk varnarmaður ÍR boltann í höndina inn í teig og vítaspyrna réttilega dæmd. Hallgrímur Mar tók spyrnuna og var hún ekki góð. Steinar Örn markvörður ÍR fór í rétt horn og varði hana og staðan því enn jöfn.

Eftir vítaspyrnuna var eins og KA liðið færi aftur á hælana og var liðið ekki nógu beitt það sem eftir lifði af venjulegum leiktíma og því framlengt.

Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti í framlengingunni þegar að gestirnir skoruðu með skalla eftir aukaspyrnu af sínum eigin vallarhelming. Eftir markið lagði KA meira púður í sóknarleikinn og fór það svo að ÍR-ingar gerðu út um leikinn 1-3 þegar að Eyþór Örn fór illa með vörn KA og endaði boltinn út í teig hjá Jóni Arnari Barðdal sem afgreiddi boltann í netið og staðan því 1-3 ÍR í vil og urðu það lokatölur.

KA liðið spilaði ekki vel í kvöld og ljóst að þeir leikmenn sem léku í kvöld eiga mikið inni. Einnig er afar slæmt að þrír leikmenn KA fóru meiddir af velli í leiknum. En Daníel Hafsteinsson fór einnig útaf meiddur í síðari hálfleik og er vonandi að allir leikmenn nái sér sem fyrst fyrir baráttuna sem er framundan í Pepsi-deildinni.

KA-maður leiksins: Elfar Árni Aðalsteinsson (Kom inn á þegar að Emil meiddist og átti fína innkomu. Skoraði eina mark KA og var líflegur.)

Næsti leikur KA er á sunnudaginn næsta í deildinni. Þá fer KA í Garðabæinn og keppir við Stjörnuna í 4. umferð. Leikurinn fer fram á Samsung vellinum í Garðabæ og hefjast leikar kl. 20:00. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is