Þorri Mar framlengir við KA út 2022

Fótbolti
Þorri Mar framlengir við KA út 2022
Við ætlumst til mikils af Þorra næstu þrjú árin

Þorri Mar Þórisson framlengdi í dag samning sínum við knattspyrnudeild KA út sumarið 2022. Þorri sem er tvítugur að aldri er öflugur leikmaður og er frábært að halda honum innan okkar raða.

Þorri spilaði fjóra leiki með KA í deild og bikar á nýliðnu sumri áður en hann var lánaður til Keflavíkur sem lék í Inkasso deildinni. Með Keflavík lék hann 12 leiki og gerði í þeim tvö mörk. Hann kom til liðs við KA frá Dalvík/Reyni þar sem hann hjálpaði liðinu að tryggja sig upp um deild sumarið 2018. Þar áður var hann á mála hjá Hannover 96 í Þýskalandi.

Við gleðjumst mikið yfir því að halda Þorra innan okkar raða og hlökkum mikið til að fylgjast með honum næstu þrjú árin.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is