Tómas Veigar lánaður í Magna

Fótbolti

Tómas Veigar Eiríksson skrifaði í gær undir lánssamning hjá Magna og mun hann því leika á Grenivík á komandi sumri. Tómas verður 22 ára síðar í mánuðinum og er afar spennandi miðjumaður en hann framlengdi samningi sínum við KA út árið 2021 fyrir skömmu.

Síðasta sumar lék Tómas bæði með Magna sem og KF en síðarnefnda liðið tryggði sér sæti í 2. deildinni með flottum árangri í 3. deildinni. Við óskum Tómasi góðs gengis með Magnamönnum og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hans á vellinum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is