Toppslagur hjá Þór/KA í kvöld!

Fótbolti
Toppslagur hjá Þór/KA í kvöld!
Agnes Birta og stelpurnar eru klárar í slaginn!

Það fer fram stórleikur á Origovellinum við Hlíðarenda í kvöld þegar Þór/KA sækir Íslandsmeistara Vals heim í Pepsi Max deild kvenna. Bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sumarsins og þurfa á sigri að halda til að halda í við Breiðablik sem er með þrjá sigra eftir þrjá leiki.

Stelpurnar okkar hafa komið mörgum á óvart með stórkostlegri byrjun sinni á tímabilinu en það er ljóst að verkefni kvöldsins verður ansi krefjandi enda Valur með hörkulið. En spilamennska Þórs/KA í fyrstu tveimur leikjunum hefur sannað það að stelpurnar geta svo sannarlega mætt af fullum krafti gegn Valsliðinu og gert þeim lífið leitt.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á Origovöllinn og styðja okkar frábæra lið til sigurs, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is