Úrslitaleikur 3. flokks C á morgun kl. 16:30

Fótbolti
Úrslitaleikur 3. flokks C á morgun kl. 16:30
Úrslit framundan á morgun!

KA og ÍA/Skallagrímur mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki karla C á KA-vellinum á morgun, laugardag, klukkan 16:30. Strákarnir hafa verið magnaðir í sumar og ætla sér þann stóra!

KA vann sannfærandi sigur í A-riðli deildarkeppninnar í sumar en strákarnir unnu níu af tíu leikjum sínum og mættu því Aftureldingu sem varð í öðru sæti B-riðils í undanúrslitunum sem fram fór á dögunum. Strákarnir tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með 3-1 sigri þar sem Tristan Máni Jónsson gerði tvö mörk og Helgi Már Þorvaldsson innsiglaði svo sigurinn í seinni hálfleik.

ÍA/Skallagrímur vann sannfærandi sigur í B-riðlinum þar sem liðið vann átta leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik og vann svo 6-0 sigur á Breiðablik í undanúrslitunum. Það má því búast við hörkuleik tveggja góðra liða í úrslitaleiknum á morgun.

Leikurinn verður í beinni á KA-TV fyrir þá sem ekki komast á leikinn, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is