500 áhorfendur á stórleiknum!

Handbolti

KA tekur á móti Haukum í stórleik í Olísdeild karla á sunnudaginn klukkan 16:00. Stuðningur ykkar skiptir okkur öllu máli og tökum við því við 500 áhorfendum á leiknum gegn framvísun neikvæðs hraðprófs.

Strákarnir unnu frábæran sigur í síðasta heimaleik og þar munaði heldur betur um frábæran stuðning ykkar í stúkunni. Við ætlum okkur að gera enn betur um helgina gegn sterku liði Hauka og til þess þurfum við öll að leggjast á eitt.

Kæru KA-menn, gerum þetta saman og sækjum tvö stig. Hlökkum til að sjá ykkur í stúkunni, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is