Heimaleikur gegn Selfoss í kvöld!

Handbolti

KA fær Selfoss í heimsókn í Olísdeild karla í handboltanum klukkan 19:30 í kvöld. Það má búast við hörkuleik en Selfyssingar eru með 15 stig á meðan KA er aðeins stigi fyrir aftan og klárt mál að strákarnir ætla sér aftur á sigurbrautina!

Miðasala er í fullum gangi í miðasöluappinu Stubbur. Hægt er að skipta KA og KA/Þórs ársmiða yfir í Stubb frá kl. 16:30 til 17:30 í KA-Heimilinu í dag auk þess sem við leiðbeinum ykkur með notkun appsins.

Ef enn eru til lausir miðar hefst venjuleg miðasala í KA-Heimilinu kl. 17:30. Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is