Komdu á handboltaæfingu!

Handbolti
Komdu á handboltaæfingu!
Býr handboltahetja í þér?

Heimsmeistaramótið í handbolta er í fullum gangi og um að gera að koma og prófa þessa skemmtilegu íþrótt. Ef þú hefur áhuga á að koma á æfingu og prófa handbolta hjá okkur í KA og KA/Þór þá skaltu ekki hika við að láta sjá þig, þú munt ekki sjá eftir því!

Það er frítt að koma og prófa í janúar og hér fyrir neðan má sjá æfingatöfluna. Ef þú hefur einhverjar spurningar þá er hægt að hafa samband við Jónatan Magnússon yfirþjálfara yngriflokka í netfanginu jonni@ka.is, annars er bara eina vitið að láta vaða og prófa!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is