Í N1 blaðinu má sjá eftirfarandi umfjöllun um Haukaliðið.
Flestir bjuggust við því að Haukar myndu gera harða atlögu að Íslandsmeistaratitlinum á síðasta tímabili eftir að hafa tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Það fór þó á annan veg, því Haukar féllu úr leik gegn Fram sem sópaði þeim út strax í undanúrslitunum. Vonbrigðin urðu því mikil í Hafnarfirðinum og betur má ef duga skal þetta árið.
Frammistaðan á síðasta vetri hefur varla gert annað en að hleypa svolitlum hita í Haukana sem hljóta að gera þá kröfu til sjálfra sín að gera betur. Allt annað en toppbarátta hlýtur að fokkast sem vonbrigði þar á bæ, enda er markið alltaf sett hátt að Ásvöllum. Þá er leikmannahópurinn að mestu sá sami og skilaði deildarmeistaratitlinum í fyrra, nema hvað að liðsmenn eru nú árinu eldri og reyndari.
Díana Guðjónsdóttir hugsaði sig ekki lengi um þegar hún var innt eftir því hvert markmiðið væri hjá Haukum í vetur: „Að gera betur en í fyrra,“ var svarið og var hún langt í frá búin að gleyma frammistöðunni í undanúrslitunum gegn Fram. „Við gerðum einfaldlega upp á bak þar.“
Getum náð árangri með þetta lið
Hún er mjög ánægð með leikmannahópinn sinn endaði skilaði hann frábærum árangri í deildinni. „Núna erum við með næstum sama hóp og skilaði okkur efsta sæti í deildinni og við eigum klárlega að geta náð árangri með þetta lið.“
Díana er ekki nógu ánægð með varnarleik liðsins og telur helst bóta þörf þar. „Við höfum verið mjög sterkar sóknarlega en bara lélegar varnarlega. Það er ágætt að fá þessi undirbúningsmót til þess að sjá í hverju þarf að vinna.“ Hún býst við því að nota einhvers konar afbrigði af 6-0 vörn en virðist eiga erfitt með að koma þeim skilaboðum áleiðis til leikmanna. „Miðað við hæð leikmanna minna eigum við ekkert að vera að spila passíva 6-0 vörn, þær vilja svolítið vera bara á sex metra línunni og það gengur einfaldlega ekki. Ég er að reyna að ná því fram að spila aggresíva 6-0 vörn en það gengur erfiðlega hjá mér að fá það inn. Vonandi tekst það.“
Um liðið:
Haukar spiluðu vel þar til í blálokin í fyrra. Þá kom óskiljanlega léleg frammistaða í undanúrslitunum gegn Fram og veturinn varð því verulega endasleppur hjá liðinu. Þær hljóta að stefna á að gera betur í vetur, enda með nánast sama leikmannahóp og vann deildarmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.
Styrkleikar: Hraðaupphlaup og sóknarleikur.
Veikleikar: Haukar halda að þeir spili góða vörn, sem þeir gera einfaldlega alltof sjaldan. Með hraðaupphlaupsmanneskjur eins og Hönnu og Ernu væri liðið banvænt ef vörnin héldi betur. Þetta á sérstaklega við í leikjum gegn betri liðum deildarinnar.
Lykilleikmenn: Hanna G. Stefánsdóttir og Ramune Pekarskyte.
