Frítt inn með framvísun hraðprófs!

Handbolti

Það er gríðarlega mikilvægur leikur hjá strákunum í handboltanum á sunnudaginn þegar Grótta mætir norður kl. 18:00. Grótta er stigi fyrir ofan okkar lið og ljóst að með sigri munu strákarnir fara uppfyrir Seltirninga í töflunni og býður Greifinn ykkur frítt á leikinn!

Til að sækja þessi mikilvægu tvö stig þurfum við á ykkar stuðning að halda kæru KA-menn en við munum taka við 500 áhorfendum gegn framvísun neikvæðs hraðprófs. Hraðprófið má ekki vera eldra en 48 klst.

Hlökkum til að sjá ykkur, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is