Afturelding sterkari í sveiflukenndum leik

Handbolti
Afturelding sterkari í sveiflukenndum leik
Frábær stemning í kvöld (mynd: Þórir Tryggva)

KA tók á móti Aftureldingu í kvöld í 8. umferð Olís deildar karla. Það mátti búast við hörkuleik sem úr varð en Mosfellingar hafa leikið mjög vel í deildinni og hafa á að skipa stóru og sterku liði. KA liðið ætlaði hinsvegar að svara fyrir frekar dapran síðasta leik er liðið féll úr bikarnum.

Frá fyrstu mínútu léku gestirnir með aukamann í sókninni sem reyndist 3-2-1 vörn okkar KA manna ansi erfitt. Sóknarleikur okkar liðs var fínn en Pálmar Pétursson í marki gestanna gerði vel í að loka á þau færi sem við sköpuðum. Fljótlega var staðan því orðin 4-8 og í kjölfarið fór KA að leika 6-0 vörn og 5-1 til skiptis.

Það lagaði ekki stöðuna því gestirnir komust í 9-16 og fór þá um þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína í KA-Heimilið í kvöld. En KA liðið er ekki þekkt fyrir að leggja árar í bát og skoraði næstu þrjú mörk leiksins, þar af tvö í autt mark. Hálfleikstölur voru 12-17, staðan ansi erfið gegn jafn sterkum andstæðing en þó voru blikur á lofti enda strákarnir byrjaðir að refsa fyrir aukamann Mosfellinga í sókninni.

Tímalína fyrri hálfleiks

Byrjunin á síðari hálfleik var svo draumi líkust en strákarnir skoruðu fyrstu sex mörk hálfleiksins og komust yfir í 18-17. Það kviknaði heldur betur líf í húsinu og fannst manni leikurinn vera að snúast KA liðinu í vil.

En það býr einnig mikið í liði Aftureldingar og þeir náðu áttum sínum og úr varð svakalegur leikur. Jafnt var á öllum næstu tölum og skemmtanagildi leiksins mikið eins og svo oft áður í KA-Heimilinu.

Það voru á endanum gestirnir sem reyndust sterkari á lokakaflanum þar sem þeir komust meðal annars fjórum mörkum yfir. Eins og svo oft áður gafst KA liðið ekki upp og gerði hvað sem það gat til að koma til baka, nær komust þeir þó ekki en í stöðunni 28-30 sem urðu lokatölur.

Tímalína seinni hálfleiks

Frábær leikur fyrir áhorfendur og KA liðið sýndi gríðarlegan karakter í að brúa sjö marka forskot og rúmlega það með því að komast yfir. Spilamennskan var hinsvegar ekki nógu stöðug í allar 60 mínútur leiksins og liggur sigur gestanna aðallega í því að þeir átti jafnari leik.

Mörk KA: Áki Egilsnes 7, Dagur Gautason 6, Tarik Kasumovic 6, Allan Norðberg 4, Jovan Kukobat 1, Sigþór Gunnar Jónsson 1, Heimir Örn Árnason 1, Daníel Matthíasson 1, Jón Heiðar Sigurðsson 1 og Einar Birgir Stefánsson 1 mark.

Jovan Kukobat varði 15 skot í marki KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is