André Collin tekur við stjórn karlaliðs KA

Blak
André Collin tekur við stjórn karlaliðs KA
André stýrir liðinu út tímabilið

Filip Pawel Szewczyk hefur ákveðið að taka sér frí frá þjálfun meistaraflokks karla og mun í kjölfarið einbeita sér að því að spila með liðinu auk þess sem hann mun áfram sinna þjálfun yngri flokka félagsins.

André Collins dos Santos mun taka við stjórn liðsins út tímabilið en Collin er 41 árs gamall Brasilíumaður sem kom til KA fyrir veturinn í vetur og mun áfram spila með liðinu. Við bindum miklar vonir við André en hann hefur komið vel inn í félagið og er ákaflega sigursæll sem þjálfari undanfarin ár á Spáni.

Við þökkum Filip kærlega fyrir hans framlag en hann hefur verið potturinn og pannan í blakstarfi KA undanfarin ár og ákaflega jákvætt að njóta áfram krafta hans.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is