Bæði lið 4. flokks karla í úrslitaleikinn

Handbolti
Bæði lið 4. flokks karla í úrslitaleikinn
Magnaður árangur hjá strákunum!

KA mun leika um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta bæði á eldra og yngra ári 4. flokks karla en bæði lið unnu góða sigra í undanúrslitunum í KA-Heimilinu um helgina. Leikið verður til úrslita á laugardaginn og ansi spennandi dagur framundan hjá okkur KA fólki.

Strákarnir á yngra árinu lögðu Hauka í undanúrslitunum í gær en þarna mættust einmitt liðin sem léku til bikarúrslita fyrr á árinu. Þar þurftu strákarnir að bíta í það súra epli að tapa á lokasekúndunni en það sást strax að þeir voru klárir í að hefna fyrir þær ófarir í gær. KA liðið náði frumkvæðinu og tókst eftir mikla dramatík undir lokin að tryggja 25-24 sigur og fögnuðurinn eðlilega gríðarlegur í leikslok.

Eldra árið tók á móti HK í sínum undanúrslitaleik í dag og þar var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. KA leiddi 13-7 í hálfleik og vann að lokum afar sannfærandi 28-17 sigur. Strákarnir eru nú þegar Deildar- og Bikarmeistarar og ekki nokkur spurning að þeir ætla sér að bæta Íslandsmeistaratitlinum við en þeir eru einnig ríkjandi Íslandsmeistarar frá því í fyrra.

Stórkostlegur árangur hjá strákunum en það kemur svo í ljós í vikunni hvort að stelpurnar í 4. flokki KA/Þórs takist að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum líka en þær mæta Fram á útivelli í undanúrslitunum. KA/Þór stelpurnar urðu fyrr í vetur Bikarmeistarar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is