Nýjar stjórnir í blaki, júdó og handbolta

Almennt | Handbolti | Júdó | Blak | Tennis og badminton

Aðalfundir Handknattleiks-, Blak-, Júdó- og Spaðadeildar KA fóru fram í vikunni þar sem farið var yfir síðasta ár bæði inná vellinum sem og utan. Þá var kosið í stjórnir deildanna ásamt því að aðilum var þökkuð góð störf í þágu félagsins undanfarin ár.

Handknattleiksdeild

Handknattleiksdeild KA er að klára mikilvægt ár enda er kvennalið félagsins að fara upp um deild og meistaraflokkur karla er aftur starfræktur hjá félaginu. stækkar töluvert við sig og skipar stjórn deildarinnar nú 11 manns.

Haddur Júlíus Stefánsson, formaður
Atli Ragnarsson, gjaldkeri
Bjarni Jónason, varaformaður
Erlingur Kristjánsson, ritari
Jóhann G. Hermansson, meðstjórnandi
Anna Hildur Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
Guðrún Linda Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
Halldór Karlsson, meðstjórnandi
Guðmundur Hermannsson, meðstjórnandi
Baldur Halldórsson, meðstjórnandi
Elvar Jónsteinsson, meðstjórnandi

Blakdeild

Blakdeildin fagnaði frábærum árangri karlaliðs KA sem eðlilega stóð uppúr á árinu. Það er þó nóg um að vera og er til að mynda stórt öldungablaksmót í lok mánaðar. Ný stjórn Blakdeildar er svohljóðandi:

Arnar M. Sigurðsson, formaður
Brynja Möller, varaformaður
Egill Heinesen, gjaldkeri
Stefán Hallgrímsson, ritari
Halldóra Margrét Bjarnadóttir, meðstjórnandi

Júdódeild

Júdódeildin hóf aftur störf innan KA í ágúst á árinu 2017 og var almenn ánægja með það skref á aðalfundi deildarinnar. Breytingar urðu á stjórn deildarinnar og er hún nú skipuð eftirfarandi:

Heiðar Jónsson, formaður
Hermann Torfi Björgólfsson, varaformaður
Sigmundur Magnússon, ritari
Hans Rúnar Snorrason, gjaldkeri
Edda Ósk Tómasdóttir, meðstjórnandi
Adam Brands Þórarinsson, varamaður

Spaðadeild

Spaðadeildin heldur áfram sínu starfi og eru uppi ýmsar hugmyndir um hvernig hægt sé að halda áfram að stækka hana og gera enn betur. Engar breytingar voru á stjórn deildarinnar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is