Bæði lið KA í bikarúrslitahelginni

Blak

Helgina 22.-24. mars fer fram bikarúrslitahelgina í blaki en þá verður leikið í undanúrslitum sem og úrslitum bæði í karla- og kvennaflokki. KA er með lið á báðum vígstöðvum og er klár stefna hjá liðunum okkar að hampa bikarnum. Leikið verður í Digranesi í Kópavogi.

Bæði karla- og kvennalið KA eru Deildarmeistarar eftir ansi vel heppnaða deildarkeppni auk þess sem karlaliðið er ríkjandi Íslands- og Bikarmeistari að auki.

Það er ljóst að þessi helgi sem er framundan verður ansi hreint skemmtileg og spennandi og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að drífa sig á okkar leiki en stelpurnar ríða á vaðið á föstudeginum klukkan 20:30 er þær mæta Þrótti Neskaupstað.

Strákarnir leika sinn undanúrslitaleik á laugardeginum klukkan 15:00 en þeir mæta einnig Þrótti Neskaupstað. Úrslitaleikirnir fara svo fram á sunnudeginum klukkan 13:30 og 15:30.

Hægt er að kaupa passa sem veitir aðgang að öllum leikjum helgarinnar og kostar hann einungis 4.000 krónur. Passinn er til sölu í afgreiðslu KA-Heimilisins, ekki missa af stærstu blakhelgi ársins, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is