Miguel Mateo íþróttamaður KA 2019

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak
Miguel Mateo íþróttamaður KA 2019
Mateo átti frábært ár og er íþróttamaður KA 2019

92 ára afmæli Knattspyrnufélags Akureyrar var fagnað í KA-Heimilinu í dag við skemmtilega athöfn. Ingvar Már Gíslason formaður KA fór yfir viðburðarríkt ár og munum við birta ræðu hans á morgun hér á síðunni. Landsliðsmenn KA voru heiðraðir auk þess sem Böggubikarinn var afhentur og íþróttamaður KA var útnefndur.

Deildir innan KA útnefndu bæði karl og konu úr sínum röðum sem íþróttamann KA en það voru þau Alexander Heiðarsson (júdó), Áki Egilsnes (handbolti), Berenika Bernat (júdó), Elfar Árni Aðalsteinsson (fótbolti), Hulda Bryndís Tryggvadóttir (handbolti), Hulda Elma Eysteinsdóttir (blak), Karen María Sigurgeirsdóttir (fótbolti) og Miguel Mateo Castrillo (blak).


Efstu þrjú sætin í kjöri íþróttamanns KA ásamt formanni og fyrrum formönnum félagsins

Miguel Mateo Castrillo var valinn íþróttamaður KA en hann fór fyrir karlaliði KA í blaki sem vann alla titla sem í boði voru á árinu en KA er Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að vera meistari meistaranna. Auk þess þjálfar Mateo kvennalið KA sem er einnig handhafi allra titlanna í blaki kvenna. Mateo var einnig stigahæsti maður deildarinnar og var auk þess í úrvalsliði deildarinnar á síðasta tímabili og er einnig Íslandsmeistari í strandblaki.

Í öðru sæti var Hulda Elma Eysteinsdóttir en hún var fyrirliði KA sem vann í fyrsta skipti í sögunni alla mögulega titla síðasta tímabils, er liðið varð deildar-, bikar- og Íslandsmeistari. Elma fór í vor ásamt A-landsliði Íslands á smáþjóðleikana sem haldnir voru í Svartfjallalandi og stóð sig með stakri prýði. Einnig varð hún Íslandsmeistari í strandblaki í sumar en hún lagði svo skóna á hilluna að loknu síðasta tímabili.

Jöfn í 3. sæti voru þau Berenika Bernat og Elfar Árni Aðalsteinsson. Berenika er ellefufaldur Íslandsmeistari í júdó og núverandi Íslandsmeistari í U-21 árs flokki og Elfar Árni fór fyrir markaskorun knattspyrnuliðs KA er hann gerði 13 mörk í 21 leik í Pepsi Max deildinni og var aðeins einu marki frá markahæsta manni deildarinnar.

Þá voru 8 ungir iðkendur tilnefndir til Böggubikarsins sem eru tveir farandbikarar, gefnir af Gunnari Níelssyni, Ragnhildi Jósefsdóttur og börnum þeirra til minningar um Sigurbjörgu Níelsdóttur, Böggu, systur Gunnars. Bögga var fædd þann 16. júlí 1958 og lést þann 25. september 2011.

Böggubikarinn skal veittur þeim einstaklingum, pilti og stúlku, sem eru á aldrinum 16- 19 ára og þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

Þau sem tilnefnd voru í ár eru þau Arnór Ísak Haddson (handbolti), Birgir Baldvinsson (fótbolti), Gísli Marteinn Baldvinsson (blak), Gylfi Rúnar Edduson (júdó), Hekla Dís Pálsdóttir (júdó), Jóna Margrét Arnarsdóttir (blak), Karen María Sigurgeirsdóttir (fótbolti) og Rakel Sara Elvarsdóttir (handbolti).


Arnór Ísak, Jóna Margrét og Rakel Sara hlutu Böggubikarinn

Arnór Ísak Haddsson var valinn hjá strákunum en þrátt fyrir ungan aldur er Arnór kominn inn í æfingahópinn hjá meistaraflokki karla og hefur tekið þátt í undanförnum leikjum. Þá hefur Arnór spilað geysilega vel fyrir ungmennalið KA í Grill-66 deildinni og er auk þess fastamaður í U-17 ára landsliðinu sem endaði í 4. sæti á EM sem haldið var í Aserbaídsjan.

Hjá stelpunum voru þær Jóna Margrét Arnarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir jafnar í efsta sæti og hljóta því báðar Böggubikarinn. Jóna sem er 16 ára gömul hefur æft með meistaraflokksliði KA í blaki frá árinu 2016 og vann alla þá titla sem í boði voru með liðinu á árinu. Þá lék hún nýverið sína fyrstu A-landsliðsleiki auk þess að vera lykilmaður í U-17 ára landsliði Íslands.

Rakel Sara er ein af efnilegustu hornamönnum Íslands í dag og er hún fastamaður í meistaraflokksliði KA/Þórs sem berst um sæti í úrslitakeppninni í vor. Í sumar fór hún með U-17 ára landsliðinu á Evrópumót þar sem hún stóð sig frábærlega og var verðlaunuð með sæti í úrvalsliði mótsins.

Þá heiðraði félagið alls 30 félagsmenn sem tóku þátt í landsliðsverkefnum á nýliðnu ári en það voru þau Alexander Arnar Þórisson, Alexander Heiðarsson, Anna Þyrí Halldórsdóttir, Arnór Ísak Haddsson, Berenika Bernat, Birkir Freyr Elvarsson, Dagur Gautason, Daníel Hafsteinsson, Einar Ari Ármannsson, Filip Pawel Szewczyk, Gígja Guðnadóttir, Gísli Marteinn Baldvinsson, Gylfi Edduson, Hákon Orri Hauksson, Heiðbrá Björgvinsdóttir, Hekla Dís Pálsdóttir, Helena Kristín Gunnarsdóttir, Helga María Viðarsdóttir, Hildur Lilja Jónsdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Karl Stefánsson, Rakel Sara Elvarsdóttir, Sigþór Gunnar Jónsson, Svavar Ingi Sigmundsson, Sölvi Páll Sigurpálsson, Torfi Tímoteus Gunnarsson og Valdís Kapitola Þorvarðardóttir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is