Skemmtiblakmót á laugardaginn

Blak
Skemmtiblakmót á laugardaginn
Skemmtileg fjölbreytni í jólafríinu

Laugardaginn 28. desember verður blakdeild KA með skemmtimót fyrir alla sem hafa áhuga. Þátttökugjald er 2.500 krónur á mann en mótið fer þannig fram að fyrir hverja umferð er dregið í lið og því nauðsynlegt að aðlagast snemma hverju liði fyrir sig!

Taldir eru sigrar hvers og eins yfir mótið og stendur uppi sem sigurvegari sá aðili sem vinnur flesta leiki. Einnig verða útdráttarverðlaun og ljóst að mikið fjör verður á svæðinu.

Mótið hefst klukkan 15:00 og lýkur klukkan 18:00. Hlökkum til að sjá ykkur í blakgírnum í jólafríinu!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is