Einar Birgir framlengir við KA um tvö ár

Handbolti
Einar Birgir framlengir við KA um tvö ár
Einar og Haddur formaður handknattleiksdeildar KA

Einar Birgir Stefánsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild KA um tvö ár. Einar sem er 24 ára línumaður hefur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA undanfarin ár og er það afar jákvætt að halda honum áfram innan okkar raða.

Einar Birgir hefur leikið alla leiki KA í vetur og er einn af markahæstu leikmönnum liðsins með 46 mörk en hann gerði til að mynda öll þrjú síðustu mörk KA í 29-27 sigri á ÍBV á dögunum eftir að gestirnir höfðu leitt 26-27. Auk þess að vera öflugur í sókn þá er Einar einnig sterkur varnarmaður og frábært að sjá hann áfram í gula og bláa búningnum.

Það eru spennandi tímar framundan í handboltanum og verður KA liðið í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst innan skamms.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is