Einvígi Vals og KA/Þórs hefst í kvöld

Handbolti

Handboltaveislan heldur áfram í kvöld þegar Valur og KA/Þór mætast í fyrsta leik sínum í undanúrslitum Íslandsmótsins á Hlíðarenda klukkan 18:00. Liðin mættust í úrslitaeinvíginu um titilinn á síðustu leiktíð og alveg ljóst að svakaleg barátta og skemmtilegir leikir eru framundan.

Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í lokaúrslitin og þar sem Valur endaði sæti ofar í deildarkeppninni er Valur með heimaleikjarétt. Stelpurnar hafa þó reynslu af því að vinna á Hlíðarenda og tryggðu sér meðal annars Íslandsmeistaratitilinn þar á síðustu leiktíð. Það er því alveg klárt að okkar magnaða lið mætir óhrætt til leiks gegn sterku liði Vals.

Við hvetjum alla sem geta til að mæta á leikinn fyrir sunnan í dag en annars verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is