Frábær sigur KA á Fram (myndaveisla)

Handbolti
Frábær sigur KA á Fram (myndaveisla)
Frábær sigur í gær! (mynd: Egill Bjarni)

KA tók á móti Fram í Olísdeild karla í gær í KA-Heimilinu. Það var þó nokkur spenna fyrir leiknum enda var KA-liðið staðráðið í að koma sér aftur á beinu brautina og þá hafa leikir KA og Fram undanfarin ár verið jafnir og spennandi.

Jafnt var á með liðunum fyrri hluta fyrri hálfleiks og stefndi í enn einn hörkuleikinn. En í stöðunni 7-6 fyrir KA sýndu strákarnir gjörsamlega frábæran kafla sem breytti stöðunni í 12-6 og áttu gestirnir í raun engin svör við frábærri spilamennsku strákanna. KA leiddi loks 17-12 í hléinu eftir að hafa mest leitt með sjö mörkum.

Tímalína fyrri hálfleiks


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Það var svo í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda í þeim síðari, Framarar reyndu hvað þeir gátu til að brjóta leikinn upp en strákarnir sýndu yfirvegun og sigldu að lokum sannfærandi 37-33 sigri heim.

Tímalína seinni hálfleiks

Vörnin var mjög góð í fyrri hálfleiknum og þar fyrir aftan var Bruno Bernat öflugur í rammanum, vörnin datt aðeins niður í þeim síðari en það kom ekki að sök. Vandræði liðsins hafa verið sóknarmegin en það var allt annað að sjá til liðsins í gær, Ólafur Gústafsson steig heldur betur upp í vinstri skyttunni og í kjölfarið opnaðist meira fyrir hægri vænginn þar sem Einar Rafn Eiðsson og Óðinn Þór Ríkharðsson fóru hamförum.

Ólafur Gústafsson var markahæstur með 8 mörk, Óðinn Þór 7, Einar Rafn 6, Einar Birgir Stefánsson 4, Patrekur Stefánsson 3, Haraldur Bolli Heimisson, Arnór Ísak Haddsson, Jóhann Geir Sævarsson og Arnar Freyr Ársælsson gerðu allir 2 mörk og þá gerði Jón Heiðar Sigurðsson 1 mark.

Bruno Bernat varði 12 skot, þar af 7 í fyrri hálfleik og Nicholas Satchwell varði eitt skot.

Virkilega jákvæð úrslit og frammistaða hjá strákunum sem nutu þess greinilega í botn að spila saman í gær. Þessi frammistaða vonandi skilar okkar liði aftur á beinu brautina en framundan er útileikur gegn Aftureldingu og ljóst að þar eru önnur mikilvæg stig í húfi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is