Fyrsti heimaleikur strákanna er í kvöld

Handbolti

KA leikur sinn fyrsta heimaleik í Olísdeild karla þegar Víkingur mætir í KA-Heimilið klukkan 19:30 í kvöld. Strákarnir unnu góðan sigur í fyrsta leik vetrarins á dögunum og ætla klárlega að fylgja því eftir með ykkar stuðning í kvöld!

Ársmiðasalan er í fullum gangi í KA-Heimilinu og er hægt að tryggja sér tvennu fyrir leiki KA og KA/Þórs á aðeins 30.000 kr. Hlökkum til að sjá ykkur, áfram KA!

Ef þú kemst hinsvegar ekki á leikinn þá verður hann í beinni útsendingu á KA-TV og er hægt að fylgjast með útsendingunni hér:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is