Gríðarlega mikilvægur leikur í kvöld

Handbolti

Það eru svo sannarlega gríðarlega mikilvæg stig í húfi í kvöld þegar KA tekur á móti Fram í Olísdeild karla í handbolta klukkan 18:00 í KA-Heimilinu í dag. KA liðið vann fyrstu tvo leiki sína í vetur en hefur nú tapað fjórum í röð og eru strákarnir einbeittir í að koma sér aftur á beinu brautina.

Andstæðingar okkar í kvöld er lið Fram en Framarar hafa farið vel af stað og unnið fjóra leiki af sex. Sigur í kvöld myndi hleypa KA liðinu aftur upp í pakkann og aðeins tveimur stigum frá Fram og því ansi mikilvægt að klára verkefni dagsins á heimavelli.

Kæru stuðningsmenn, við þurfum á ykkar stuðning að halda til að klára verkefnið og hlökkum svo sannarlega til að sjá ykkur gul og glöð í stúkunni, áfram KA!

Minnum á grímuskyldu í stúkunni sem og að leikurinn verður í beinni útsendingu á KA-TV fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is