Handboltaæfingarnar byrja á morgun!

Handbolti

Handboltinn fer að rúlla aftur á morgun, mánudaginn 23. ágúst, og birtum við hér vetrartöfluna góðu. Það er svo sannarlega mikil eftirvænting hjá okkur að byrja aftur og byggja áfram ofan á frábærum árangri á síðasta vetri.

Rétt eins og síðasta vetur er æft á fjórum stöðum í bænum, KA-Heimilinu, Íþróttahöllinni, Síðuskóla og Naustaskóla. Auk þess eru sérhæfðar styrktaræfingar fyrir 3. og 4. flokk í Training for Warriors sem er í KA-Heimilinu.

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að prófa handbolta að mæta á æfingu og taka þátt í fjörinu!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is