Handboltaveislan hefst á föstudaginn!

Handbolti

KA tekur á móti Fram í fyrsta leik vetrarins í Olís deild karla í KA-Heimilinu á föstudaginn klukkan 19:30. Strákarnir eru heldur betur klárir í slaginn og ætla sér að byrja veturinn með trompi með ykkar stuðning!

Ársmiðasalan hjá karlaliði KA og kvennaliði KA/Þórs er í fullum gangi í KA-Heimilinu sem og hjá leikmönnum og stjórnarmönnum. Stakur miði kostar 20.000 krónur en KA og KA/Þór tvenna kostar 30.000 og um að gera að styðja vel við bakið á báðum liðum í vetur.

Hver ársmiði veitir 15 aðganga að heimaleikjunum en karlalið KA leikur til að mynda 11 heimaleiki og því hægt að bjóða með sér á nokkra leiki í vetur. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!

Athugið að vegna Covid reglna mega aðeins 200 eldri en 16 ára mæta á leikinn og opnar miðasala í KA-Heimilinu kl. 16:00 á föstudeginum. Ársmiðahafar þurfa að tryggja sér miða á leikinn með því að koma og sýna ársmiðann.

Yngri en 16 ára telja ekki í þessari tölu og fá frítt inn á leikinn


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is