Helga, Rakel og Anna í landsliðsverkefni

Handbolti

KA/Þór á þrjá fulltrúa í æfingahópum U-17 og U-19 ára landsliða Íslands í handbolta. Helga María Viðarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir eru í U-17 hópnum og þá er hún Anna Þyrí Halldórsdóttir í U-19. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þær allar verið í hlutverki í meistaraflokki í vetur en þær Rakel Sara og Anna Þyrí hafa verið í hóp í öllum leikjum vetrarins.

Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón Friðbjörn Björnsson þjálfa U-17 ára landsliðið sem mun æfa dagana 20.–24. mars. Stefán Arnarson og Sigurgeir Jónsson þjálfa hinsvegar U-19 ára landsliðið sem mun æfa dagana 20.–23. mars.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is