Hulda Bryndís með KA/Þór næstu 2 árin

Handbolti
Hulda Bryndís með KA/Þór næstu 2 árin
Hulda Bryndís og Haddur handsala samninginn

Hulda Bryndís Tryggvadóttir skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór í handboltanum. KA/Þór tryggði sér sigur í Grill 66 deildinni á nýliðnum vetri en stelpurnar töpuðu ekki leik í deildinni ásamt því að komast í undanúrslit Coca-Cola bikarsins.

Þetta eru frábærar fréttir en Hulda Bryndís er í stóru hlutverki í liðinu og gerði hún 49 mörk í 14 deildarleikjum á síðasta tímabili. Fyrsti leikur hjá KA/Þór á komandi tímabili verður 18. september þegar Valskonur koma í heimsókn og er allt að smella hjá liðinu fyrir veturinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is