KA - Grótta á morgun! 101 miði í boði

Handbolti
KA - Grótta á morgun! 101 miði í boði
Strákarnir ætla sér sigur á morgun! (mynd: EBF)

KA tekur á móti Gróttu í spennuleik í KA-Heimilinu á morgun, laugardag, klukkan 17:00 í 3. umferð Olís deildar karla. Strákarnir hafa byrjað veturinn vel og eru með þrjú stig af fjórum mögulegum og ætla sér að sækja önnur tvö með ykkar stuðning!

Athugið að vegna Covid stöðunnar getum við aðeins tekið á móti 101 áhorfanda. 16 ára og yngri eru inni í tölunni og hefst miðasala klukkan 12:00 í KA-Heimilinu á morgun.

Ársmiðahafar þurfa að sækja sér miða. Stakur miði kostar 1.500 kr fyrir 16 ára og eldri, 500 kr fyrir börn.

Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is