KA - ÍR í dag, líka ungmennamegin!

Handbolti
KA - ÍR í dag, líka ungmennamegin!
Fyllum KA-Heimilið í dag! (mynd: Hákon Ingi)

KA og ÍR berjast í KA-Heimilinu í dag í heildina um 4 stig en bæði aðallið og ungmennalið félaganna mætast. KA liðið byrjaði veturinn frábærlega en hefur nú tapað þremur síðustu leikjum og er ekki spurning að strákarnir ætla að koma sér aftur á beinu brautina með sigri.

Ungmennaliðin ríða á vaðið klukkan 13:30 og má búast við skemmtilegum leik, okkar strákar eru særðir eftir fyrsta tap vetrarins í síðasta leik en Breiðhyltingar eru enn án stiga og stefna væntanlega á að breyta því í dag. Fyrir ykkur sem ekki komist í KA-Heimilið þá verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV.

Leikur aðalliðanna hefst hinsvegar klukkan 17:00 og má búast við skemmtilegum leik en gestirnir hafa einungis sótt 2 stig til þessa í vetur og ætla sér því eins og okkar lið að koma sér á beinu brautina í dag. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu eindregið til að mæta á leikinn og taka þátt í stemningunni sem hefur verið svo frábær á heimaleikjunum til þessa.

Rétt eins og með ungmennaleikinn verður leikurinn í beinni á KA-TV fyrir þá sem ekki komast.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is