KA sækir Stjörnuna heim kl. 19:30

Handbolti
KA sækir Stjörnuna heim kl. 19:30
Raggi mætir sínu gamla liði í kvöld

Baráttan heldur áfram í Olís deild karla í handboltanum í kvöld er KA sækir Stjörnuna heim í TM-Höllina. KA-liðið hefur farið vel af stað og er með fjögur stig af sex mögulegum og er taplaust eftir fyrstu þrjá leiki sína.

Heimamenn hafa hinsvegar farið verr af stað og eru með eitt stig eftir sína þrjá leiki en Patrekur Jóhannesson er með hörkulið í höndunum og alveg ljóst að Stjarnan á eftir að finna taktinn og klífa töfluna.

Það má búast við alvöru baráttuleik í kvöld en leikir liðanna undanfarin ár hafa verið gríðarlega spennandi og hart barist. Ragnar Snædahl Njálsson sem gekk aftur til liðs við KA í sumar frá Stjörnunni mætir þarna fyrrum samherjum sínum en Dagur Gautason sem fór til Stjörnunnar frá KA er meiddur og getur því ekki tekið þátt í leiknum.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á leikinn og styðja KA til sigurs en fyrir þá sem ekki komast á völlinn verður hann í beinni á 210TV á YouTube, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is