KA/Þór með bingó á sunnudag

Handbolti

KA/Þór verður með stórskemmtilegt bingó á sunnudaginn klukkan 14:00 í Naustaskóla. Glæsilegir vinningar verða í boði og þá er vöfflukaffi á svæðinu. Allur ágóði fer í fyrsta evrópuverkefni stelpnanna og ljóst að þú vilt ekki missa af þessu fjöri sem hentar öllum aldri.

KA/Þór sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum á síðustu leiktíð er á leiðinni til Kósóvó þar sem liðið leikur tvo leiki gegn KFH Istogu. Istogu er Kósóvómeistari og má búast við ansi krefjandi en á sama tíma skemmtilegu verkefni þar sem liðin berjast um sæti í næstu umferð í Evrópubikarkeppni kvenna.

Þrjú bingóspjöld kosta 2.500 krónur saman en stakt spjald er á 1.000 krónur. Hlökkum til að sjá ykkur í Naustaskóla!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is