KA/Þór með öruggan sigur á Víking

Handbolti
KA/Þór með öruggan sigur á Víking
Stelpurnar gera fátt annað en að fagna í vetur!

Kvennalið KA/Þórs heldur áfram á sigurbraut í Grill 66 deild kvenna þegar liðið tók á móti Víkingum. Stelpurnar náðu fljótt góðu taki á leiknum en staðan í hálfleik var 19-13. Það var svo aldrei spurning í síðari hálfleik hvar sigurinn myndi enda og voru lokatölur 32-21 fyrir KA/Þór.

Mörk KA/Þór: Ásdís Sigurðardóttir var markahæst með 7 mörk, Kara Rún Árnadóttir og Martha Hermannsdóttir gerðu 5 mörk hvor, Ásdís Guðmundsdóttir gerði 4 mörk, Katrín Vilhjálmsdóttir gerði 3 mörk, Ólöf Marín Hlynsdóttir, Steinunn Guðjónsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir gerðu 2 mörk og Þóra Björk Stefánsdóttir og Svala Björk Svavarsdóttir gerðu 1 mark hvor.

Stelpurnar eru því áfram á toppi deildarinnar en liðið er með 27 stig þegar tvær umferðir eru eftir en HK er í 2. sæti með 25 stig og ljóst að stelpurnar þurfa að halda áfram til að tryggja sigur í deildinni og um leið sæti í deild þeirra bestu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is