KA/Þór - Stjarnan kl. 16:30 í dag

Handbolti

Baráttan heldur áfram í Olísdeild kvenna í dag er Íslandsmeistarar KA/Þórs taka á móti Stjörnunni í KA-Heimilinu klukkan 16:30. Stelpurnar unnu góðan sigur á ÍBV á dögunum og þá slógu þær út Stjörnuna í Bikarkeppninni í fyrsta leik tímabilsins.

Leikir KA/Þórs og Stjörnunnar undanfarin ár hafa verið spennuþrungnir og í raun algjörlega magnaðir handboltaleikir. Leikirnir hafa iðulega ráðist á lokasekúndunum og má reikna með að það haldi áfram í leik dagsins.

Stuðningur ykkar skiptir öllu máli og hlökkum við til að sjá ykkur í stúkunni, áfram KA/Þór!

Ef þú kemst hinsvegar ómögulega á leikinn þá verður hann í beinni á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is