KA/Þór tekur á móti Stjörnunni í dag

Handbolti

KA/Þór fær verðugan andstæðing í Olísdeild kvenna í dag þegar að Stjörnukonur koma í heimsókn. KA/Þór hefur farið ágætlega af stað á tímabilinu og er með fjögur stig eftir fjóra leiki. Stjarnan er með þrjú stig eftir fjóra leiki og því ljóst er að um mikilvægan leik er að ræða.

Deildin er gríðarlega jöfn og spennandi en aðeins tveimur stigum munar á 2. sætinu og því næst síðasta.

Leikurinn hefst kl. 18:15 í KA-heimilinu og hvetjum við alla til þess að mæta og styðja við stelpurnar okkar!

Fyrir ykkur sem ekki komist á leikinn þá verður hann í beinni útsendingu á KA-TV


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is