Myndaveisla frá lokahófi yngriflokka

Handbolti
Myndaveisla frá lokahófi yngriflokka
Gleðin var allsráðandi í gær (mynd: Þórir Tryggva)

Lokahóf yngriflokka KA og KA/Þórs fór fram í KA-Heimilinu í gær og var ansi gaman að sjá hve góð mætingin var hjá iðkendum okkar. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá var í boði og ríkti mikil gleði á svæðinu enda frábær uppskera að baki í vetur.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á svæðinu og býður til heljarinnar myndaveislu frá stemningunni á svæðinu. Allskonar leikir og keppnir fóru fram auk þess að við heiðruðum þau lið sem unnu til verðlauna á tímabilinu og þeirra iðkenda sem valin voru í landsliðsverkefni. Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að skoða myndirnar.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris frá lokahófinu

Við kunnum Þóri bestu þakkir fyrir framtakið sem og þeim fjölmörgu sem komu að og aðstoðuðu okkur við starfið í vetur. Þá heiðruðum við Stefán Árnason sem yfirgefur okkur eftir veturinn en Stebbi hefur verið í algjöru lykilhlutverki í starfinu okkar undanfarin fimm ár og enn fleiri þar áður.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is