Myndband frá bikarsigri 4. flokks yngri

Handbolti
Myndband frá bikarsigri 4. flokks yngri
Sigurgleðin var gríðarleg að leik loknum!

KA varð Bikarmeistari á yngra ári í 4. flokki karla í handbolta árið 2020. Strákarnir léku til úrslita í Coca-Cola bikarnum er þeir mættu FH í Laugardalshöllinni þann 8. mars. Strákarnir voru vel stemmdir, tóku forystuna strax frá upphafi og unnu að lokum 14-24 stórsigur.

Hér förum við á skemmtilegan hátt yfir stemninguna og sigurgleðina sem ríkti í Laugardalshöllinni hjá gulum og glöðum KA-mönnum!

Bikarmeistarar KA í 4. flokki karla yngra ár: Dagur Árni Heimisson, Marinó Þorri Hauksson, Bjarki Jóhannsson, Stefán Þórarinn Sigurðsson, Jens Bragi Bergþórsson, Hjalti Valsson, Magnús Dagur Jónatansson, Jóhannes Geir Gestsson, Skarphéðinn Ívar Einarsson, Vignir Otri, Elvarsson, Logi Gautason og Steinþór Snær Jóhannsson. Þjálfarar liðsins eru þeir Heimir Örn Árnason og Stefán Árnason.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is