Myndir frá háspennu jafntefli KA og Gróttu

Handbolti
Myndir frá háspennu jafntefli KA og Gróttu
Árni Bragi setti 9 mörk í gćr (mynd: EBF)

KA tók á móti Gróttu í KA-Heimilinu í gćr í 3. umferđ Olís deildar karla í handbolta. Leikir beggja liđa í upphafi tímabilsins hafa veriđ gríđarlega jafnir og spennandi og ţađ varđ heldur betur raunin í gćr. Liđin skiptust á ađ leiđa og fengu ţeir sem voru svo heppnir ađ ná miđa á leikinn svo sannarlega eitthvađ fyrir peninginn.

KA tók frumkvćđiđ er tíu mínútur lifđu leiks en gestirnir gáfust ekki upp og ţeim tókst ađ jafna metin á lokasekúndunni og háspennu 25-25 jafntefli ţví niđurstađan. Gríđarlega svekkjandi ađ ná ekki ađ klára tvö stig en jafntefliđ líklega sanngjarnt ţegar litiđ er yfir leikinn í heild sinni.

Tímalína fyrri hálfleiks

Tímalína seinni hálfleiks

Egill Bjarni Friđjónsson ljósmyndari var á svćđinu og myndađi leikinn í bak og fyrir. Hann býđur til myndaveislu og kunnum viđ honum bestu ţakkir fyrir.


Smelltu á myndina til ađ skođa myndir Egils Bjarna frá leiknum

Árni Bragi Eyjólfsson fór á kostum í liđi KA en hann gerđi alls 9 mörk í fjarveru Áka Egilsnes sem var settur í sóttkví ţremur tímum fyrir leik og ţurfti liđiđ ţví ađ bregđast fljótt viđ ţeim tíđindum. Hornamennirnir ţeir Allan Norđberg og Jóhann Geir Sćvarsson gerđu báđir fjögur mörk og nýttu fćrin sín vel.

Ţá kom hinn ungi Arnór Ísak Haddsson vel inn í sóknarleik liđsins, var hvergi banginn og lagđi til tvö mörk rétt eins og Patrekur Stefánsson og Einar Birgir Stefánsson. Dađi Jónsson og Jón Heiđar Sigurđsson skoruđu svo sitt markiđ hvor. Í rammanum varđi Nicholas Satchwell 8 skot og Svavar Ingi Sigmundsson 2 skot.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is