Nettómót 7.-8. flokks fer fram í dag

Handbolti

Það verður heldur betur líf og fjör í KA-Heimilinu í dag þegar Nettómótið í handbolta fer fram en þar leika krakkar í 7. og 8. flokki listir sínar. Nettó mun gefa öllum þátttakendum mótsins gjöf og svo fá krakkarnir pizzu frá Sprettinum að móti loknu.

Krakkarnir í 8. flokki ríða á vaðið en mótið hefst klukkan 8:45 og taka þátt alls 8 strákalið frá KA og 6 stelpulið. Þór sendir 5 lið til leiks og Völsungur eitt.

Fjörið hjá 7. flokki hefst svo klukkan 11:21 og er KA með 11 strákalið, Þór er með 7 lið, Völsungur 3 og stelpurnar í KA/Þór senda til leiks eitt lið.

Smelltu hér til að nálgast leikjaplan mótsins


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is