Leik HK og KA/Þórs frestað til morguns

Handbolti

Athugið að leik HK og KA/Þórs hefur verið frestað til morguns, miðvikudag, klukkan 19:30 vegna ófærðar.

KA/Þór sækir HK heim í Olís deild kvenna í kvöld klukkan 19:30 í nýliðaslag. Fyrir leikinn er lið HK í 7. sætinu en liðið sem endar í því sæti fer í umspil um áframhaldandi veru í deild þeirra bestu. Á sama tíma er okkar lið í 5. sætinu og getur með sigri blandað sér af krafti inn í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur en í fyrri leiknum sem fram fór í Digranesi leiddi KA/Þór 14-19 er 17 mínútur lifðu leiks. Þá hrökk allt í baklás hjá liðinu og HK gekk á lagið og vann á endanum ótrúlegan 20-19 sigur.

Stelpurnar hinsvegar hefndu fyrir tapið fyrir skömmu er liðin mættust í KA-Heimilinu. KA/Þór náði snemma góðu taki á leiknum og leiddi lengst af með 3-4 mörkum. Er um 10 mínútur voru búnar af síðari hálfleik var staðan 14-10, þá kom ótrúlegur kafli. KA/Þór skoraði ekki mark í rúmar 14 mínútur en gestirnir gerðu "betur" og gerðu ekki mark í rúmar 17 mínútur. Á endanum vannst sannfærandi 19-17 sigur.

Náist sigur í kvöld er okkar lið komið 10 stigum fyrir ofan 7. sætið sem ætti að tryggja endanlega áframhaldandi veru í Olís deildinni. Á sama tíma eru aðeins tvö stig upp í 4. sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni og klárt mál að stelpurnar eiga að leggja allt í sölurnar til að reyna að koma sér þangað.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, það er því um að gera að fylgjast vel með gangi mála ef þú kemst ekki í Digranesið, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is