Opna Norðlenska fer fram um helgina

Handbolti
Opna Norðlenska fer fram um helgina
Handboltaveislan er að hefjast!

Það er farið að styttast í komandi handboltavetur og fer hið árlega æfingamót Opna Norðlenska fram nú um helgina. Eins og undanfarin ár er keppt í karla- og kvennaflokki og verður spennandi að sjá stöðuna á liðunum eftir sumarfrí.

Karlamegin keppa KA, Fram, Hörður og ungmennalið KA en kvennamegin keppa KA/Þór, Fram, ÍBV og ungmennalið KA/Þórs og ÍBV. Leikið er bæði í KA-Heimilinu sem og í Höllinni.

Athugið að vegna sóttvarnarreglna eru takmörk á fjölda áhorfenda á mótinu en allir leikir sem spilaðir eru í KA-Heimilinu verða í beinni á KA-TV og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála.

Föstudagur 13. ágúst

Kyn Leikur Staður Tími
KVK ÍBV - Fram KA-Heimilið 16:00
KVK KA/Þór - ÍBV U Höllin 18:00
KK KA - Hörður KA-Heimilið 18:00
KK KA U - Fram KA-Heimilið 20:00


Laugardagur 14. ágúst

Kyn Leikur Staður Tími
KVK ÍBV - KA/Þór U Höllin 11:00
KK KA - Fram KA-Heimilið 12:00
KK KA U - Hörður Höllin 13:30
KVK KA/Þór - Fram KA-Heimilið 14:00

 

KA - Fram - 12:00

KA/Þór - Fram kvenna - 20:00


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is