Rafrænn 93 ára afmælisfögnuður KA

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Knattspyrnufélag Akureyrar heldur upp á 93 ára afmæli sitt að þessu sinni með sjónvarpsþætti vegna Covid 19 stöðunnar. Í þættinum er íþróttakarl og íþróttakona ársins hjá félaginu kjörin auk þjálfara og liðs ársins. Böggubikarinn er að sjálfsögðu á sínum stað og Ingvar Már Gíslason formaður flytur ávarp sitt.

Þá undirrita Ingvar og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar viljayfirlýsingu er snýr að uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði KA. Það er því ljóst að þú vilt ekki missa af þessum glæsilega þætti okkar sem gerir upp áhugavert íþróttaár í sögu félagsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is