Strákarnir kláruðu tímabilið með ótrúlegum sigri

Blak

KA vinnur ótrúlegan 3-2 sigur á HK og tryggir sér um leið Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla! Strákarnir eru því þrefaldir meistarar annað árið í röð og leika því eftir magnað afrek kvennaliðs KA, takk fyrir ótrúlegan stuðning kæru KA-menn!

KA er fyrsta félagið í sögu blaksins að vera handhafi allra titla karla- og kvennamegin. Þetta magnaða tímabil fer því í sögubækurnar og vill Blakdeild KA þakka öllum þeim sem komu að þessu magnaða afreki, áfram KA!

Nánari umfjöllun kemur síðar


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is